Ég tók áskorun FÍT (Félags íslenskra teiknara) um að taka yfir Instagram-ið þeirra í viku. Ég notaði tækifærið til að pósta aðallega efni úr skúffinni, efni sem hefur orðið til án kúnna, með undantekningunni FX Iceland.
Ártal er tilraun til að skapa fjölskylduhefð. Svona eins kona mini Times Square ártal í stofunni sem breytt er á slaginu miðnætti á gamlárskvöld og svo skálað á eftir .